Fotbolti.net
24.08.15 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Roberto Carlos fær Malouda til Indlands (Staðfest)

Florent Malouda.

Florent Malouda.

Canon

Mynd: Getty Images

Florent Malouda, fyrrum leikmaður Chelsea, hefur samið við Dehli Dynamos í Indlandi.

Malouda var á síðasta tímabili hjá Metz í Frakklandi en samningur hans þar rann út í sumar.

Roberto Carlos er spilandi þjáflari hjá Dehli en þessi 42 árs gamli Brassi tók við liðinu á dögunum.

John Arne Riise hefur einnig samið við Dehli og því er nóg af öflugum örvfættum leikmönnum hjá félaginu.
Dehli endaði í fimmta sæti á síðasta tímabili en liðið setur markmiðið hærra á þessu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.