Fotbolti.net
23.08.26 - 22:08
Brynjar Ingi Erluson
Franski boltinn

Frakkland: Ferran bjargaði andliti PSG - Dier skoraði sigurmark Mónakó

Ferran skoraði tvennu í fyrsta deildarleiknum

Ferran skoraði tvennu í fyrsta deildarleiknum

Canon

Mynd: PSG

Heimsmeistarinn Ferran Torres var ekki lengi að láta til sín taka hjá Evrópumeisturum Paris Saint-Germain, en hann skoraði bæði mörk liðsins og bjargaði stigi í 2-2 jafntefli gegn Rennes í 1. umferð frönsku deildarinnar.
PSG lenti snemma undir eftir hraða og svolítið brösuga sókn Rennes.

Löng hreinsun fór fram völlinn og boltinn var skallaður á Adrien Thomasson sem lagði hann fyrir Sebastian Szymanski. Hann lét vaða fyrir utan vítateig og boltinn fór í vinstri stöngina og þaðan í netið.

Tólf mínútum síðar taldi Desire Doue sig hafa jafnað metin en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Rennes tvöfaldaði forystuna á 38. mínútu, aftur eftir hraða sókn, en aukaspyrna var tekin hratt fram völlinn á meðan leikmenn PSG sváfu á verðinum. Boltinn fór upp hægri vænginn og þaðan kom lagleg hælsending á Przemyslaw Frankowski. Hann sendi fastan bolta inn á teiginn þar sem Esteban Lepaul afgreiddi hann hnitmiðað upp við nærstöngina.

Lepaul hefur því byrjað tímabilið af krafti eftir að hafa skorað 20 deildarmörk fyrir Rennes á síðustu leiktíð.

Luis Enrique sá sig knúinn til að breyta liðinu í hálfleik og sendi nýju mennina Mika Godts og Ferran inn á.

Ferran, sem tryggði Spánverjum heimsmeistaratitilinn í síðasta mánuði, minnkaði muninn á 71. mínútu. Fabian Ruiz átti konfektsendingu yfir vörn Rennes á Ferran sem renndi boltanum undir markvörðinn.

Tíu mínútum síðar var uppskriftin svipuð. Ruiz sendi fyrirgjöf inn á teiginn sem Ferran stangaði í netið.

Meistararnir þurftu því að sætta sig við 2-2 jafntefli. Bradley Barcola og Ibrahim Mbaye voru ekki í leikmannahópi PSG en báðir gætu yfirgefið félagið fyrir lok félagaskiptagluggans.

Eric Dier var þá hetja Mónakó í 1-0 sigri á Le Havre. Fyrrum Tottenham-maðurinn skoraði með skalla eftir hornspyrnu á 14. mínútu og reyndist það eina mark leiksins.

Le Havre 0 - 1 Monaco
0-1 Eric Dier ('14 )

Rennes 2 - 2 Paris Saint Germain
1-0 Sebastian Szymanski ('9 )
2-0 Esteban Lepaul ('38 )
2-1 Ferran Torres ('71 )
2-2 Ferran Torres ('82 )
Eric Dier gerði sigurmark Mónakó

Eric Dier gerði sigurmark Mónakó

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.