Fotbolti.net
23.08.26 - 18:04
Brynjar Ingi Erluson

Einkunnir Newcastle og Liverpool: Vondur dagur hjá bakvörðunum

Jeremie Frimpong var í miklum vandræðum í bakverðinum

Jeremie Frimpong var í miklum vandræðum í bakverðinum

Canon

Mynd: EPA

Yoane Wissa og Cody Gakpo voru bestu menn leiksins í 2-2 jafntefli Newcastle United og Liverpool í dag. Það er BBC sem heldur utan um einkunnir leikmanna.
England: Hádramatík þegar Szoboszlai bjargaði stigi fyrir Liverpool
TENGT EFNI

England: Hádramatík þegar Szoboszlai bjargaði stigi fyrir Liverpool

Wissa var líflegur í sóknarleik Newcastle og lagði meðal annars upp annað mark liðsins. Hann fær 8 í einkunn fyrir frammistöðuna.

Gakpo fær sömu einkunn hjá Liverpool eftir að hafa skorað fyrra mark liðsins með frábæru skoti fyrir utan teig.

Bakverðirnir Jeremie Frimpong og Milos Kerkez voru slökustu menn Liverpool og jafnframt vallarins með aðeins 4 í einkunn.

Alexander Isak sneri aftur á St. James' Park en endurkoman var lítið eftirminnileg. Hann komst aldrei í takt við leikinn og fær aðeins 5 í einkunn.

Newcastle: Hornicek (7), Dedic (7), Thiaw (7), Botman (6), Hall (6), Miley (7), Steur (7), Elanga (7), Wissa (8), Barnes (6), Osula (7).
Varamenn: Willock (7), Ramsey (6), Bamba (6), Murphy (6).

Liverpool: Alisson (5), Frimpong (4), Jacquet (7), Van Dijk (6), Kerkez (4), Szoboszlai (7), Gravenberch (6), Ngumoha (5), Wirtz (6), Gakpo (8), Isak (5).
Varamenn: Munoz (7), Mac Allister (5), Araujo (6), Koumas (5).
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.