Fotbolti.net
24.08.26 - 12:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Útskýrði af hverju Valdimar byrjaði ekki Evrópuleikinn

Kom inn á gegn Borac.

Kom inn á gegn Borac.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sparkspekingar ræddu talsvert um liðsval Sölva Geirs Ottesen eftir tap Víkings geng Borac Banja Luka í leik liðanna á fimmtudag.

Það vakti athygli að Valdimar Þór Ingimundarson, besti leikmaður Íslandsmótsins 2025, byrjaði á bekknum og var horft í það hvers vegna þeir Stígur Diljan Þórðarson og Ármann Ingi Finnbogason væru frekar í liðinu. Nikolaj Hansen og Aron Elís Þrándarson voru svo fremstu menn, en Valdimar hefur oftast spilað sem annar af tveimur fremstu mönnum.

Ármann og Stígur, sem spila á köntunum, höfðu báðir byrjað sigurleikina gegn Thun og FH þar á undan og leikið vel, en Valdimar byrjaði ekki gegn svissnesku meisturunum í Thun.
Í viðtali við Fótbolta.net sagði Valdimar að hann hefði verið svekktur að byrja ekki gegn Borac. Sölvi Geir var spurður út í Valdimar í viðtali eftir sigurleikinn gegn Val, en Valdimar skoraði fyrra mark Víkinga í gær.

„Hann er mjög mikilvægur í þessu liði. Það eru taktískar pælingar sem þjálfarar fara í og við töldum það betra í síðasta leik á móti Borac, við sáum leikmyndina spilast þannig - og hún gerði það - að við værum að koma með fullt af krossum fyrir og þá vildum við (hafa) háa leikmenn (Nikolaj og Aron Elís). Valdi gerir vel og er tilbúinn þegar kallið kemur, hann gerði vel þegar hann kom inn í þann leik og núna byrjaði hann þennan leik og spilaði frábærlega. Þetta er hluti af því að vera í liðsíþrótt, stundum þarftu að sitja á bekknum og þá nýtiru tækifærið þegar þú kemur aftur inn," sagði Sölvi.
Markinu í gær fagnað.

Markinu í gær fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Geir: Hefur heldur betur sett mark sitt á sögu Víkings

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.