Fotbolti.net
24.09.15 - 08:00
Arnar Geir Halldórsson
Ítalska deildin

Francesco Lodi til Udinese (Staðfest)

Francesco Lodi

Francesco Lodi

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski miðvallarleikmaðurinn Francesco Lodi er genginn til liðs við Udinese.
Lodi hefur verið án félags eftir að hann yfirgaf Catania í sumar en hann eyddi síðustu leiktíð á láni hjá Parma.

Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur leikið allan sinn feril á Ítalíu og á fjölmarga leiki að baki í efstu deild með alls sjö liðum. Þá lék hann á sínum tíma fyrir öll yngri landslið Ítalíu.

Hann þekkir til hjá Udinese eftir að hafa leikið með liðinu tímabilið 2009/2010.

Udinese hefur ekki farið vel af stað í deildinni á þessari leiktíð og hefur aðeins unnið einn leik í fyrstu fimm umferðunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.