Fotbolti.net
24.09.15 - 22:57
Ívan Guðjón Baldursson

Jóhannes Karl tekur við HK/Víkingi (Staðfest)

Jóhannes Karl Sigursteinsson er ekki nýgræðingur þegar það kemur að þjálfun kvennaliða.

Jóhannes Karl Sigursteinsson er ekki nýgræðingur þegar það kemur að þjálfun kvennaliða.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Jóhannes Karl Sigursteinsson er tekinn við kvennaliði HK/Víkings eftir að Ragnar Gíslason hafði ekki hug á að endurnýja útrunninn samning sinn sem þjálfari meistaraflokks kvenna.

Jóhannes Karl hefur áður þjálfað meistaraflokk Stjörnunnar og Breiðlabliks í kvennaboltanum og er með EUFA A þjálfararéttindi.
„Þjálfarastörfum í þágu HK/Víkings hefur Ragnar sinnt ötullega og af mikilli fagmennsku þannig að bæði 2. flokkur og meistaraflokkur hafa átt góðu láni að fagna,\" stendur í yfirlýsingu á vefsíðu HK.

„2. flokkur vann B deildina árið sem hann þjálfaði flokkinn og meistaraflokkur hefur nú í tvígang verið hársbreidd frá því að ná því markmiði að fara upp í úrvalsdeild og þá sérstaklega í sumar þegar liðið tapaði einungis einum leik en útsláttarfyrirkomulag úrslitakeppni mótsins stóð árangri liðsins fyrir þrifum þannig að baráttan í 1. deild heldur áfram.

„Ragnari ber að þakka sérstaklega vel þessi góðu störf en ekki er svo annars að vænta en að samstarfið verði áfram með ágætum þar sem hann er yfirþjálfari HK áfram og hefur svo tekið að sér þjálfun 3. flokks HK kvenna.

„Að þessum fregnum fengnum var strax hafist handa við leit að staðgengli og skjótt reyndist unnt að leita ásjár hjá Jóhannesi Karli Sigursteinssyni um að taka starf meistaraflokksþjálfara að sér. Brátt gekk að ná samkomulagi og fór svo að ritað var undir samning í dag, fimmtudag.\"

Heimild: HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.