Liverpool komst áfram í deildabikarnum í kvöld með 7-2 sigri gegn Lincoln á útivelli.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, gerði tíu breytingar á liði sínu frá sigurleiknum gegn Chelsea um síðustu helgi. Hann var ánægður með sigurinn í kvöld.
„Þeir áttu skilið að skora sín tvö mörk," sagði Klopp um C-deildarlið Lincoln.
„Við spiluðum mjög góðan fótboltaleik í kvöld. Það var gaman að horfa á hann. Við sendum boltann og kláruðum færin sem við sköpuðum. Strákarnir vildu spila fótbolta og sýndu framúrskarandi viðhorf."
„Þú átt að klæðast þessari treyju og sýna hver þú ert. Ég er ánægður með allt."
Athugasemdir