19.09.26 - 19:50
Helgi Inguson
Arnór Breki: Vonandi var þetta skemmtilegur viðburður
Auglýsing

Arnór Breki var með fyrirliðabandið í dag

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þróttur mun leika í Bestu deildinni árið 2027 eftir sigur á Fylki í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar. Fótbolti.net náði tali af Arnóri Breka Ásþórssyni, leikmanni Fylkis, eftir leik.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 0 Fylkir
„Menn voru að þreifa fyrir sér langt fram eftir leik. Við vorum aðeins farnir að færa okkur framar á völlinn í seinni hálfleik. En það var ekki mikið um opnanir.
Við héldum leikplani alveg þar til þeir skora, við vorum þéttir og ætluðum að reyna að refsa þeim. En eftir markið fórum við úr leikplani og það gekk ekki upp," sagði Arnór um leikinn.
Stuðningurinn í stúkunni var frábær hjá báðum liðum og Arnór var ánægður með stuðningsmenn sína.
„Það var frábært að sjá alla sem mættu, það var víst gríðarleg stemning í Minigarðinum fyrir leik. Vonandi var þetta skemmtilegur viðburður þrátt fyrir að þetta hafi farið svona," sagði Arnór Breki að lokum.