24.09.26 - 08:00
Elvar Geir Magnússon
Daníel Leó: Enn að toppa mig með hverju árinu
Auglýsing

Daníel Leó Grétarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Matthías Már

Mynd: AGF

Daníel Leó Grétarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Ég er mjög spenntur fyrir þessum glugga. Við ætlum að sýna okkar rétta andlit og hvað við höfum unnið að í síðustu gluggum," segir Daníel Leó Grétarsson, lykilmaður í vörn íslenska landsliðsins.
Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvellu á laugardag í fyrsta leik sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar. Svo koma leikir gegn Lúxemborg úti og Búlgaríu heima. Glugganum lýkur á öðrum leik við Eistland, þá á útivelli.
„Þetta er lengri gluggi en vanalega, þéttari pakki, og skiptist á heima- og útileikjum svo þetta eru smá ferðalög. Menn þurf að nýta sér nuddarana til að halda sér í góðu standi. Það má búast við því að mínúturnar dreifist meira og allir verða að vera klárir að hjálpa til."
„Við erum hæstir á heimslistanum af liðum riðilsins. Við verðum að sýna það að við eigum heima ofar. Taflan lýgur ekkert og við þurfum að fá úrslitin.

Ekki margir komið upp
Mikil umræða hefur verið undanfarin ár um að Ísland sé farið að framleiða færri varnarsinnaða leikmenn en á árum áður. Hvað segir Daníel um þá umræðu?
„Það hafa ekki margir verið að koma upp síðustu ár, hvort það tengist þessari gervigrasvæðingu eins og hefur verið talað um veit ég ekki. Maður þarf að vera með ákveðið hugarfar til að vera varnarmaður og með ástríðu fyrir því. Ég held að það séu alveg efnilegir varnarmenn á leiðinni."
Hreinskilinn með að ég vildi fara
Daníel færði sig um set á lokadegi gluggans í Danmörku, kvaddi Sönderjyske og gekk í raðir meistarana í AGF.
„Þetta gerðist mjög seint, á gluggadeginum, það var svona 50/50 að þetta myndi ganga upp. Ég er mjög sáttur við að þetta gekk upp og ég var mjög hreinskilinn við Sönderjyske með að ég vildi fara. Við vorum búnir að ræða saman allan glugga og mér fannst komi tími á breytingu og ég er mjög sáttur að þetta hafi verið lendingin," segir Daníel.
„Þó ég sé að verða 31 árs þá finnst mér ég enn vera að toppa mig með hverju árinu, bæði spilalega og með aukinni reynslu sem hjálpar fyrir þá sem spila aftast á vellinum. Vonandi get ég deilt þeirri reynslu frá mér til annarra."
Hræðslan við að tapa sterkari en löngunin til að vinna
Byrjunin á þessu tímabili hjá AGF hefur verið erfið og liðið er án sigurs með fimm stig í næstneðsta sæti eftir níu umferðir.
„Það bjóst enginn við því að þeir tækju titilinn í fyrra en þeir gerðu það og oft vill annað árið vera erfitt. Evrópa bættist við og liðið er ekki vant svona leikjatörn. Það tekur á og menn þurfa að venjast því. En ég held að það sé allt upp á við núna. Þegar hlutirnir falla ekki með þér verður oft hræðslan við að tapa sterkari en löngunin til að vinna. Þegar það gerist þá þarf að hreinsa til í huganum. Ég hef enga trú á öðru en að þetta verði upp á við núna."
„Ég fékk eina viku til að koma mér í gang, var á bekknum í fyrsta leiknum en er síðan búinn að spila alla leikina frá byrjun. Ég þarf bara að halda áfram, kynnast leikmönnum. Það tekur tíma að aðlagast og kynnast því hvað þjálfararnir vilja frá mér."
Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.