Fotbolti.net
24.10.19 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Nýtt íslenskt félag auglýsir á ruslatunnum í Skotlandi

Saint Paul Edeh er þjálfari Stríðsmanna.

Saint Paul Edeh er þjálfari Stríðsmanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Knattspyrnufélagið Stríðsmenn er nýtt félag á Íslandi sem stefnir á þátttöku í 4. deild karla næsta sumar. Stríðsmenn eru með háleit markmið og samkvæmt heimasíðu félagsins er markmiðið að fara beint upp í 3. deild á fyrsta ári sínu.

Á Twitter í gærkvöldi birtist mynd frá Glasgow í Skotlandi þar sem auglýsing frá Stríðsmönnum sést á rusaltunnum í Skotlandi. Þar er verið að auglýsa eftir leikmönnum í allar stöður á vellinum.

„Þénaðu 2000 pund (322 þúsund krónur) eða meira á mánuði með því að vinna og spila á Íslandi," segir efst í auglýsingunni. Á heimasíðu Stríðsmanna kemur fram að félagið borgi leikmönnum ekki laun eða bónusa en það sé tilbúið að hjálpa leikmönnum að fá atvinnu á Íslandi.
Nú þegar eru leikmenn frá þrettán löndum í liði Stríðsmanna og koma þeir frá fjórum heimsálfum.

Á heimasíðunni kemur fram að æfingar hefjist hjá liðinu í Fífunni í janúar og að heimavöllur liðsins næsta sumar verði á Framvelli í Safamýri. Þjálfari liðsins er Saint Paul Edeh fyrrum leikmaður Fram og Afríku.

Smelltu hér til að fara á heimasíðu Stríðsmanna
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.