Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. október 2020 14:45
Aksentije Milisic
Asensio var nálægt því að fara til Barcelona
Mynd: Getty Images
Marco Asensio, leikmaður Real Madrid, hefur sagt frá því að hann hafi verið mjög nálægt því að ganga til liðs við erkifjendurnar í Barcelona.

Asensio fór til Real þegar hann var 18 ára árið 2014 frá Mallorca.

„Það er satt, ég var mjög nálægt því að fara til Barcelona. En það voru líka önnur lið í spilunum," sagði Asensio.

„Þegar ég skrifaði undir hjá Real þá gerðist það allt mjög hratt. Félagið vildi virkilega fá mig og þá var ekki hægt að segja nei við þennan klúbb."

Þá segir hann að tenniskappinn Rafael Nadal, sem er mikill stuðningsmaður Real, hafi mælt með Asensio fyrir klúbbinn. Hann sagði þetta væri leikmaður sem Real hreinlega þyrfti að fá til liðsins. Þannig hófst áhugi Real á leikmanninum.

Þessa stundina er leikur Barcelona og Real Madrid í gangi á Stöð 2 Sport.
Athugasemdir
banner
banner