24.11.14 - 11:23
Magnús Már Einarsson
Haukur Heiðar til AIK (Staðfest)

Haukur Heiðar Hauksson.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Sænska félagið AIK hefur keypt hægri bakvörðinn Hauk Heiðar Hauksson frá KR.
Hinn 23 ára gamli Haukur hefur skrifað undir samning við AIK sem gildir til ársins 2018.
<i>,,Það er draumur að rætast með því að skrifa undir hjá stærsta félaginu í Svíþjóð,\"</I> sagði Haukur Heiðar.
<i>,,Einn af draumum mínum hefur alltaf verið að verða atvinnumaður og ég er ótrúlega ánægður með að það hafi tekist.\"</I>

Haukur Heiðar var valinn leikmaður ársins hjá KR í sumar ásamt Gary Martin en hann var í íslenska landsliðshópnum í leiknum gegn Tyrkjum fyrr í haust.
Haukur á 158 leiki að baki í efstu og næstefstu deild en hann byrjaði að spila með uppeldisfélagi sínu, KA, aðeins 17 ára gamall.
AIK er eitt stærsta lið Svíþjóðar en liðið lenti í 3.sæti Allsvenskan á nýafstaðinni leiktíð. Heimavöllur liðsins, Friends Arena, tekur alls 54 þúsund áhorfendur.