Fotbolti.net
24.11.20 - 21:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

England: Fyrsti tapleikur Daníels - Jökull spilaði í stórsigri

England: Fyrsti tapleikur Daníels - Jökull spilaði í stórsigri
Canon

Mynd: Getty Images

Daníel Leó Grétarsson spilaði allan leikinn fyrir Blackpool er liðið tapaði fyrir Doncaster í ensku C-deildinni í kvöld.
Blackpool komst í 2-0 og var með tveggja marka forystu í hálfleik. En í seinni hálfleiknum tókst Doncaster að koma til baka og vinna leikinn.

Þetta er fyrsti tapleikur Daníels með Blackpool en liðið hafði unnið fyrstu þrjá deildarleikina sem hann hafði spilað. Eftir tapið í kvöld er Blackpool í 15. sæti með 16 stig.

Jökull Andrésson varði mark Exeter í ensku þegar liðið burstaði Colchester, 6-1. Jökull er í láni frá Reading og hefur staðið sig vel í fjórðu efstu deild Englands. Eftir þennan stóra sigur í kvöld er Exeter í fimmta sæti deildarinnar.

Jökull er 19 ára og er einn af efnilegustu markvörðum sem við Íslendingar eigum.
Jökull Andrésson.

Jökull Andrésson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.