Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 25. janúar 2020 21:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Josip Ilicic fljótur að hugsa og skoraði með skoti frá miðju
Mynd: Getty Images
Atalanta er þessa stundina að valta yfir Torino í ítölsku Seríu A. Staðan er 0-5 fyrir gestina frá Atalanta og um stundarjórðungur eftir af leiknum.

Josip Ilicic er kominn með þrennu fyrir gestina. Duvan Zapata og Robin Gosens hafa skorað hin tvö mörk Atalanta.

4. mark Atalanta og 2. mark Ilicic var einkar laglegt. Markvörður Torino var kominn hátt upp á völlinn og sendi boltann inn á vallarhelming Atalanta. Boltinn var skallaður í burtu og varnarmenn handléku knöttinn við miðlínuna þegar þeir tóku á móti skallanum. Aukaspyrna dæmd.

Ilicic var fljótur að átta sig og þrumaði boltanum í átt að marki Torino og yfir markvörðinn sem stóð enn framarlega. Boltinn sveif í markið, virkilega vel skotið hjá Slóvenanum.

Annað mark Ilicic má sjá með því að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner