Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 25. janúar 2021 21:38
Brynjar Ingi Erluson
Clyne áfram hjá Palace - Gerir samning út tímabilið
Nathaniel Clyne í leik gegn Liverpool
Nathaniel Clyne í leik gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
Nathaniel Clyne, varnarmaður Crystal Palace, hefur gert samning við félagið út þetta tímabil en þetta kemur fram í tilkynningu frá Palace á samfélagsmiðlum.

Enski hægri bakvörðurinn hefur átt í erfiðleikum með meiðsli síðustu ár og hrjáði það hann mikið er hann var á mála hjá Liverpool.

Samningur hans hjá Liverpool rann út síðasta sumar en Roy Hodgson, stjóri Palace, ákvað að gefa honum tækifæri á því að koma sér aftur á skrið.

Það hefur gengið vel fyrir sig og hefur Clyne spilað 10 leiki í deild- og bikar með Palace en samningur hans átti að renna út seinna í þessum mánuði.

Hann hefur nú framlengt við félagið út þetta tímabil en staðan verður endurmetin eftir leiktíðina.
Athugasemdir
banner
banner
banner