Fotbolti.net
25.02.26 - 15:32
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Benfica áfrýjaði banninu en fékk höfnun

Gianluca Prestianni æfði á Santiago Bernabeu í gær.

Gianluca Prestianni æfði á Santiago Bernabeu í gær.

Canon

Mynd: EPA

Það er staðfest að Gianluca Prestianni leikmaður Benfica tekur út bann í seinni viðureign liðsins gegn Real Madrid í umspili Meistaradeildarinnar í kvöld.

Benfica áfrýjaði ákvörðun UEFA um að dæma hann í eins leiks bráðabirgðabann eftir að hann var sakaður um kynþáttaníð í fyrri leiknum. Þeirri áfrýjun var hafnað.

Prestianni ferðaðist með til Madrídar og æfði með liðsfélögum sínum í gær en hann er sakaður um að hafa verið með kynþáttaníð í garð Vinicius Jr.

UEFA er með málið til rannsóknar og setti Prestianni í eins leiks bráðabirgðabann.
Fór með til Madrídar þrátt fyrir bannið og fékk lófaklapp á flugvellinum
TENGT EFNI

Fór með til Madrídar þrátt fyrir bannið og fékk lófaklapp á flugvellinum

„Það hefur ekkert verið sannað og þetta bann er óréttlætanlegt. Það er verið að mála Prestianni upp sem rasista en það er hann svo sannarlega ekki. Ég get fullyrt það," sagði Rui Costa, forseti Benfica.

Argentínumaðurinn gæti fengið tíu leikja bann ef hann verður fundinn sekur um kynþáttaníð.

Leikur Real Madrid og Benfica hefst klukkan 20 í kvöld en Madrídarliðið leiðir einvígið með einu marki. Vinicius Jr skoraði eina markið í Lissabon.
Benfica áfrýjaði banninu en fékk höfnun
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.