Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 25. mars 2020 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Milan Jovic: Á að fangelsa son minn ef hann er sekur
Mynd: Getty Images
Luka Jovic, sóknarmaður Serbíu og Real Madrid, á yfir höfði sér refsingu fyrir að svindla á sóttkví til að fagna afmæli kærustu sinnar.

Real Madrid var í sóttkví en Jovic fékk leyfi til að fljúga heim til Belgrad þar sem hann fékk neikvæða niðurstöðu úr COVID-19 prófi.

Jovic lenti í Serbíu þar sem hann átti að fara í tveggja vikna sjálfseinangrun en nokkrum dögum síðar sást til hans úti á lífinu að fagna afmæli kærustu sinnar.

Forseti Serbíu og forsætisráðherra hafa báðir gagnrýnt hegðun Jovic og nú hefur faðir hans, Milan Jovic, bæst í hópinn.

„Ég er algjörlega sammála forsetanum og forsætisráðherranum. Ef Luka er sekur og verður dæmdur til fangelsisvistar þá þarf hann bara að sætta sig við það," sagði Milan Jovic.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner