Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. mars 2023 11:40
Aksentije Milisic
Maguire: Man ekki eftir að hafa tapað leik með Man Utd undanfarið
Mynd: Getty Images

Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, hefur fengið að spila nokkra leiki upp á síðkastið en heilt yfir hefur hann verið varaskeifa fyrir Raphael Varane og Lisandro Martinez á þessari leiktíð.


Maguire var mikið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína á síðasta tímabili og ekki byrjaði þetta tímabil vel. Eftir að hann fór á bekkinn þá hefur Bruno Fernandes verið með fyrirliðabandið. Maguire segir að hann hafi enn mikil áhrif á liðið.

„Þegar ég spila, þá held ég að síðustu 8 eða 9 leikir sem ég hef byrjað höfum við unnið,” sagði Harry.

„Ég man ekki eftir því að hafa tapað leik með Man Utd undanfarið, það hlýtur að hafa verið bara í byrjun tímabils. Ég hef enn mikil áhrif,” sagði fyrirliðinn.

United byrjaði tímabilið hörmulega með tveimur töpum gegn Brighton og Brentford en síðan þá hefur Erik ten Hag gert frábæra hluti með liðið. United hefur unnið deildabikarinn, er í þriðja sæti í deildinni og enn á lífi í enska bikarnum og Evrópudeildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner