Fotbolti.net
25.04.22 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skrifar frá: Viðtal

„Megum ekki verða 'soft' gervigraslið sem er gaman að horfa á en nær engum árangri"

„Megum ekki verða 'soft' gervigraslið sem er gaman að horfa á en nær engum árangri"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fótbolti.net ræddi við Arnar Gunnlaugsson í dag og var þjálfari Víkings spurður út í fjarveru Pablo Punyed, leikmanns liðsins, í gær.

Sjá einnig:
Pablo á leið í myndatöku - „Vonandi ekkert alvarlegt"
Lestu um leikinn: ÍA 3 - 0 Víkingur R.
Fréttaritara fannst tilvalið að heyra einnig hljóðið í þjálfaranum daginn eftir óvænt tap gegn ÍA á útivelli. Óvænt tap ef marka má lokastöðu liðanna í deildinni í fyrra og pappírana góðu.

Arnar gerði tvær mannabreytingar á öftustu línu frá sigrinum gegn FH í fyrstu umferð. Breytingarnar voru hins vegar fjórar ef horft er í það að Davíð Örn Atlason fór úr vinstri bakverði í þann hægri og Oliver Ekroth fór úr hægri miðvarðarstöðunni yfir í þá vinstri. Inn í vörnina komu þeir Logi Tómasson og Kyle McLagan og þeir Karl Friðleifur Gunnarsson og Halldór Smári Sigurðsson urðu að gera sér það að góðu að byrja á bekknum.

Voru engir jólasveinar
Sérðu eftir því að hafa gert þessar breytingar?

„Núna?" spurði Arnar og hló. „Það er alltaf gott að vera vitur eftir á. Hvað á maður að segja... annað hvort ertu með hóp sem þú treystir eða ekki, ég lít á þetta þannig. Vörnin í gær, þetta voru engir jólasveinar. Ég held að það hafi ekki verið vandamálið í gær," sagði Arnar.

„Mér fannst það meira vera attitjúdið í liðinu, töffaraskapur og þetta var bara lélegt - sérstaklega í fyrri hálfleik. Þetta kallaði yfir okkur slæmt karma sem gerðist svo í leiknum. Mér fannst þetta vera attitjúdið, að mæta upp á Skaga og ætla taka þetta með annarri."

Tækling Olivers breytti taktinum í leiknum
Kom þér eitthvað á óvart í leiknum í gær?

„Ég held að ekkert hafi komið neinum á neitt á óvart. Hvorki við þeim eða öfugt. Þegar þú ferð upp á Skaga, sem ég þekki ansi vel, þá veistu hverju þú átt von á."

„Leikurinn byrjaði þannig að þeir komust ekki fram fyrir miðju en svo kemur atvik í leiknum sem breytir stemningunni þegar Oliver á frábæra tæklingu. Staðurinn lyftist allur upp og það var 'momentum shift' í leiknum. Þeir fengu svo þessi fjögur innköst sem áttu öll að vera viðvaranir fyrir okkur en við vorum steinsofandi í þeim öllum. Svo endar þetta þannig að fjórða innkastið á því að vera mark."

„Það var verulega skrítið að sjá meistara lenda í svona rugli, verulega 'off'."


Sjá einnig:
Ótrúlega sterk skilaboð í leikinn

Einstaklingsmistök í hornspyrnunum
Mörkin sem ÍA skorar eftir hornspyrnurnar. Hvað hefðiru viljað sjá gert öðruvísi?

„Þetta voru bara einstaklingsmistök. Það er ekkert að strúktúrnum eða neitt svoleiðis. ÍA gerði þetta sama gegn Stjörnunni líka. Það er kannski, mögulega, í fyrsta markinu.. af því að það var búið að halda einhverja dómarafundi þar sem kom fram að þú mátt ekki standa og blokka markmenn - það var megin þemað á þeim fundi... mögulega naut Ingvar ekki alveg vafans varðandi frjálsræði um að geta hreyft sig almennilega. Þetta voru samt klárlega mistök hjá frábærum markverði sem á inni hjá okkur."

„Þetta voru ekki bestu hornspyrnur í heimi eða neitt svoleiðis og á sama tíma myndi ég ekki segja að við þurfum að hafa sérstakar áhyggjur af föstum leikatriðum í framtíðinni."

„Þetta var bara 'one of those days', slæmur dagur eins og ég sagði eftir leikinn í gær,"
sagði Arnar.

Þarft að fara í stríð og fara til að vinna það
Geturu nýtt þennan leik til að benda leikmönnum þínum á hvað getur gerst ef þeir mæta með viðlíka 'attitjúd' eins og þú orðaðir það?

„Já, klárlega. Það verða allir dýrvitlausir á móti okkur. Þetta verður 'tough'. Það er létt að spila í góðu liði með sterkum karakterum. Í bikarúrslitaleiknum í fyrra voru fimm karakterar sem vantaði í gær. Kári, Sölva, Atla, Pablo og Niko. Stundum þarftu að gera meira í leik en að vera með góða tækni. Þú þarft að 'grind-a' og sérstaklega í leikjum þar sem völlurinn er erfiður. Þá þarftu að fara í stríð og fara til að vinna það. Það verða fullt af svoleiðis leikjum í sumar, fullt af grasleikjum og við megum ekki verða 'soft' gervigraslið sem er gaman að horfa á en nær engum árangri," sagði Arnar.

Viðtal Fótbolta.net við Arnar eftir leikinn í gær má sjá í spilaranum hér að neðan.
Klárlega mistök hjá frábærum markverði sem á inni hjá okkur

Klárlega mistök hjá frábærum markverði sem á inni hjá okkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Vantaði karaktera í gær

Vantaði karaktera í gær

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Gunnlaugs: Fyrri hálfleikur var ömurlegur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.