Fotbolti.net
05.07.26 - 16:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kominn í nýtt lið eftir stutta dvöl í Eyjum (Staðfest)

Kominn í nýtt lið eftir stutta dvöl í Eyjum (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Filip Stuparevic, fyrrum leikmaður ÍBV, hefur fundið sér nýtt lið en hann er genginn til liðs við Napredak í Serbíu.

Liðið endaði á botni efstu deildar í Serbíu á síðustu leiktíð og spilar því í næst efstu deild á næstu leiktíð.
Stuparevic er 25 ára serbneskur framherji. Hann gekk til liðs við ÍBV í apríl en þá hafði hann ekki spilað í rúmt ár vegna meiðsla. Hann var á sínum tíma yngsti leikmaðurinn til að spila í efstu deild í Serbíu.

Hann kom við sögu í sex leikjum í sumar án þess að skora. ÍBV ákvað að rifta samningnum hans fyrir mánuði síðan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.