Fotbolti.net
25.04.26 - 15:26
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarliðin í enska: Guardiola gerir átta breytingar - Saka á bekknum hjá Arsenal

Pep Guardiola gerir margar breytingar á byrjunarliðinu

Pep Guardiola gerir margar breytingar á byrjunarliðinu

Canon

Mynd: EPA

Tveir stórir leikir fara fram í enska boltanum í dag, en Arsenal tekur á móti Newcastle í 34. umferð úrvalsdeildarinnar á Emirates klukkan 16:30 og þá mun Man City spila við Southampton í undanúrslitum enska bikarsins klukkan 16:15 á Wembley.
Pep Guardiola gerir margar breytingar á byrjunarliði Man City fyrir leikinn gegn Southampton. John Stones er fyrirliði liðsins, en breytingarnar eru margar hjá Guardiola og byrja aðeins þrír af þeim sem voru í liðinu í 1-0 sigrinum á Burnley í vikunni, þeir Matheus Nunes, Rayan Ait-Nouri og Rayan Cherki.

Man City á möguleika á því að vinna þrennuna innanlands, en liðið er einnig á toppnum í deildinni og vann þá deildarbikarinn í síðasta mánuði.

Man City: Trafford; Matheus Nunes, Stones, Aké, Ait-Nouri; Nico González, Kovacic, Reijnders; Foden, Cherki; Marmoush

Southampton: Peretz; Bree, Harwood-Bellis, Wood; Welington, Jander, Bragg, Fellows; Azaz, Scienza; Stewart.

Arsenal tekur á móti Newcastle í deildinni. Mikel Arteta gerir aðeins eina breytingu á byrjunarliðinu, en Ben White kemur inn fyrir Cristhian Mosquera.

Það er þá fagnaðarefni fyrir Arsenal-menn að Bukayo Saka er mættur aftur, en hann tekur sér sæti á bekknum.

Eddie Howe gerir fimm breytingar á liði Newcastle sem hefur tapað fjórum leikjum í röð í öllum keppnum. Fyrirliðinn Bruno Guimaraes kemur inn ásamt þeim Nick Pope, Dan Burn, Joe Willock og Jacob Murphy.

Arsenal: David Raya; White, Saliba, Gabriel, Hincapié; Odegaard, Zubimendi, Rice; Madueke, Havertz, Eze

Newcastle: Pope; Miley, Thiaw, Botman, Burn; Guimaraes, Tonali, Willock; Ramsey, Osula, Murphy.
Bukayo Saka snýr aftur hjá Arsenal

Bukayo Saka snýr aftur hjá Arsenal

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City3+59
2Arsenal3+59
3Hull City3+37
4Chelsea3+16
5Brentford3+35
6Liverpool3+25
7Newcastle3+25
8Everton3+25
9Leeds3+15
10Brighton3+34
11Man Utd3+14
12Sunderland304
13Crystal Palace3-43
14Ipswich Town3-43
15Bournemouth3-12
16Nott. Forest3-12
17Aston Villa3-51
18Tottenham3-51
19Fulham3-30
20Coventry3-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.