PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fengu tvo leikmenn sem allir vildu - „Held að það sé samt sterkast"
Kvenaboltinn
Elísa Bríet Björnsdóttir.
Elísa Bríet Björnsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birgitta Rún Finnbogadóttir.
Birgitta Rún Finnbogadóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA er spáð sjöunda sæti Bestu deildar kvenna fyrir tímabilið en þær hafa samt sem áður fengið sterka leikmenn til sín í vetur. Reynsluboltinn Arna Sif Ásgrímsdóttir kom frá Val og þá fékk Akureyrarfélagið góða sendingu frá Sauðárkróki þegar Elísa Bríet Björnsdóttir og Birgitta Rún Finnbogadóttir skrifuðu undir hjá félaginu.

„Þær gætu alveg komið á óvart. Að fá þessa leikmenn inn er gríðarlega sterkt fyrir þær. Ég held að það sé samt sterkast að fá Örnu Sif. Það hefur vantað upp á varnarleikinn og vantað að fá leiðtoga í vörnina," sagði Arnar Páll Garðarsson þegar rætt var um Þór/KA í Uppbótartímanum.

Elísa Bríet og Birgitta Rún eru tveir leikmenn sem flestöll félög Bestu deildarinnar vildu fá í sínar raðir.

„Þær eru nálægt heimahögunum áfram. Þeirra stuðningsmenn munu mæta á völlinn og styðja þær áfram. Það gleymist líka að María (Dögg Jóhannesdóttir) fór líka þangað úr Tindastól. Hún hefur byrjað hjá þeim í vetur og það er flottur leikmaður. Þetta verður ógeðslega flott hjá þeim, núna eru þær hættar að vera í litla liðinu og þurfa að taka næsta skref. Framtíðin er mjög björt hjá þeim," sagði Snæbjört Pálsdóttir í þættinum.

„Ég get alveg trúað því (að flest liðin í Bestu deildinni hafi farið á eftir þeim). Þær eru ógeðslega flottir karakterar utan vallar. Ég held að Elísa Bríet sé ótrúlega góð í skóla og sé ári á undan öllum. Geggjaður karakter."

Hægt er að horfa og hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan


Slapp
banner
banner