Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir er í vörninni hjá Bayern München sem mætir Barcelona í fyrri leiknum í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á Allianz-leikvanginum í München klukkan 16:15 í dag.
Þetta er einn stærsti leikur ferilsins hjá Glódísi sem er að spila í fyrsta sinn í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Síðan hún gekk í raðir Bayern hefur liðið þrisvar sinnum dottið út í 8-liða úrslitum.
Glódís hefur spilað marga stóra leiki á ferlinum, bæði með félagsliði og íslenska landsliðinu, en þessi viðureign kemst nokkuð örugglega á topplistann yfir stærstu leikina.
Byrjunarlið Bayern: Mahmutovic; Gwinn, Viggosdottir, Gilles, Kett; Stanway, Amani; Dallmann, Taniwaka, Buhl; Harder.
Byrjunarlið Barcelona: Cata Coll; Ona Batlle, Paredes, Mapi León, Brugts; Vicky Lopez, Patri Guijarro, Alexia Putellas; Hansen, Pajor, Claudia Pina.
???? ???????????????????? ???????? ???? #BayernBarça pic.twitter.com/B07oPKWkRk
— FC Bayern Frauen (@FCBfrauen) April 25, 2026



