Finn Azaz, markaskorari Southampton í 2-1 tapi gegn Manchester City í undanúrslitum enka FA bikarsins glímdi við blendnar tilfinningar eftir leik er hann var til viðtals við ITV í kvöld.
„Þetta er tilfinningarússíbani. Ég er niðurbrotinn yfir að vera úr leik, sérstaklega þegar maður telur sig vera með eitthvað í höndunum þegar tíu mínútur eru eftir. En aðallega er ég stoltur af frammistöðunni. Við mættum hingað með leikplan um að vinna leikinn, svo einfalt er það, og við vorum nálægt því.“
Azaz sem kom Southampton yfir í leiknum skoraði gott mark eftir hraðasókn þeirra og hafði um það að segja.
Ég man eiginlega ekki hvað gerðist. Ég sá að ég var laus og fylgdi bara innsæinu. Þetta var klikkað augnablik og eitt það besta á ferlinum hjá mér. Það var ótrúlegt að sjá stuðningsmennina fagna – guli veggurinn var magnaður.“
Margir stuðningsmenn sem ekki fengu miða á Wembley fylgdust með leiknum á risaskjám á heimavelli liðsins, St Mary’s. Þeir sögðu í samtali við ITV að þeir væru stoltir:
„Við vorum engin skömm,“ sagði einn stuðningsmaður. „Við veittum Manchester City harða keppni og komumst yfir. Þeir þurftu að sýna heimsklassa gæði til að vinna okkur á lokametrunum.“



