PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 22:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Salah búinn að spila lokaleikinn fyrir Liverpool?
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mo Salah fór meiddur af velli þegar Liverpool tók á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni og óttast margir stuðningsmenn Liverpool að þeir séu búnir að sjá það síðasta af Salah í Liverpool búningi.

Salah fann fyrir meiðslum sem litu út fyrir að vera smávægileg tognun aftan í læri. Það jákvæða var að hann gat gengið sjálfur af velli.

Einungis eru fjórir leiki framundan hjá Liverpool áður en Salah kveður í sumar og lokaleikurinn, heimaleikur gegn Brentford, fer fram 24. maí, eftir mánuð. Menn eru misfljótir að jafna sig eftir tognanir og krosslegja eflaus margir fingur að Salah spili aftur með Liverpool.

„Það er of snemmt að segja en við þekkjum öll Mo og hversu erfitt það er fyrir hann að þurfa fara af velli. Að hann þurfi að gera það, það gefur ýmislegt í skyn, en við verðum að bíða og sjá hversu slæm meiðslin eru," sagði Arne Slot, stjóri Liverpool, eftir leikinn.

Salah er að kveðja Liverpool í sumar eftir að hafa verið hjá félaignu frá sumrinu 2017 er hann kom fra Roma. Hann mun kveðja Liverpool sem goðsögn og klárlega einn allra besti leikmaður í sögu félagsins - og jafnvel hreinlega sá besti.


Slapp
banner
banner
banner