Hollenska D-deildarfélagið Harkemase Boys sigraði Hoek 4-2 í lokaumferð deildartímabilsins.
Heimamenn voru komnir í 3-0 þegar gestirnir tóku við sér og minnkuðu muninn á 62. mínútu. Fjórum mínútum síðar var staðan orðin 3-2 og er markið skráð á Kyle Doesburg.
Doesburg skoraði þó alls ekki þetta mark, heldur var það dómari leiksins Maurice Paarhuis. Hann var skelfilega staðsettur innan vítateigs og fékk boltann í sig. Þaðan hrökk knötturinn innfyrir marklínuna og dæmdi Paarhuis markið gilt.
Leikmenn Harkemase mótmæltu en voru aðallega hissa á því sem hafði gerst, enda ekki á hverjum degi sem dómarinn setur boltann í netið.
Nog nooit meegemaakt dit pic.twitter.com/sGyixN0gFb
— Harkemase Boys (@HarkemaseBoys) May 25, 2019
Athugasemdir