Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 25. maí 2019 17:51
Ívan Guðjón Baldursson
Pepsi Max-deildin: Markalaust í Kórnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK 0 - 0 Grindavík

Viðureign HK og Grindavíkur var að ljúka með markalausu jafntefli í Kórnum.

Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og var ekki mikið um marktækifæri í nokkuð bragðdaufum leik. Aron Jóhannsson, miðjumaður Grindavíkur, fékk besta færi fyrri hálfleiksins en þrumaði yfir.

Heimamenn í HK fengu nokkur góð færi eftir leikhlé en Vladan Djogatovic stóð sig vel á milli stanganna.

Grindavík er með 9 stig eftir 6 umferðir og taplaust í síðustu 5 leikjum. HK er með 5 stig.







Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner