Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 25. maí 2019 16:41
Ívan Guðjón Baldursson
Úkraína: Árni og félagar komust af botninum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vorskla Poltava 1 - 2 Chornomorets Odessa
0-1 V. Koval ('26)
1-1 Y. Kolomoets ('55)
1-2 V. Tanchyk ('63)
Rautt spjald: V. Chesnakov, Vorskla ('68)

Árni Vilhjálmsson lék fyrstu 65 mínúturnar í afar mikilvægum sigri Chornomorets Odessa í úkraínska boltanum.

Þetta var annar sigur liðsins í röð og kom hann Árna og félögum af botninum rétt fyrir lokaumferðina.

Botnlið deildarinnar fellur niður en næstu tvö lið fyrir ofan fara í fallumspil. Odessa getur tryggt sig í umspilið með sigri gegn Desna í næsta leik.

Árni er búinn að gera 5 mörk í 11 leikjum frá komu sinni til Úkraínu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner