Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 25. maí 2020 09:31
Elvar Geir Magnússon
Guðlaugur Victor í sjötta sinn í liði umferðarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson var maður leiksins þegar lið hans Darmstadt vann 4-0 sigur gegn St. Pauli í þýsku B-deildinni um helgina.

Guðlaugur Victor hefur átt þrusuflott tímabil og var hann valinn í úrvalslið umferðarinnar. Þetta er í sjötta sinn á tímabilinu sem hann er þess heiðurs aðnjótandi.

Darmstadt er í fimmta sæti, sex stigum frá þriðja sæti og sjö stigum frá öðru sæti. Tvö efstu lið deildarinnar fara beint upp í þýsku úrvalsdeildina, en liðið í þriðja sæti fer í umspil við liðið sem hafnar í 16. sæti í úrvalsdeildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner