Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. maí 2020 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Matondo hugsar ekki um Man Utd
Rabbi Matondo
Rabbi Matondo
Mynd: Getty Images
Rabbi Matondo, leikmaður Schalke í Þýskalandi, segist ekki hugsa um áhuga Manchester United á honum og að hann ætli að einbeita sér að því að klára tímabilið með Schalke.

Matondo, sem er 19 ára gamall, gekk til liðs við Schalke á síðasta ári eftir að hafa alist upp hjá Manchester City.

Hann hefur staðið sig vel í Þýskalandi og er byrjaður að vekja áhuga margra toppliða en Manchester United er í bílstjórasætinu um hann.

„Fólk er augljóslega að tala og spyrja mig út í hitt og þetta en ég reyni að pæla ekki í þessu. Ég er að einbeita mér að Schalke og ég þarf að ná mínum markmiðum hér. Ég einbeiti mér að því og svo sjáum við hvernig hlutirnir fara," sagði Matondo.
Athugasemdir
banner
banner
banner