Fotbolti.net
25.05.23 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aðeins eitt félag sem Mourinho ber ekki djúpar tilfinningar til

Jose Mourinho.

Jose Mourinho.

Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho, stjóri Roma, segist bera mikla hlýju og djúpar tilfinningar til allra þeirra félaga sem hann hefur stýrt á ferli sínum, nema Tottenham.
Mourinho er einn sigursælasti stjóri sögunnar en hann hefur stýrt Benfica, Uniao de Leiria, Porto, Chelsea, Inter, Real Madrid, Manchester United, Tottenham og Roma á sínum ferli. Hann er í dag stjóri síðastnefnda liðsins.

Mourinho sat fyrir svörum í dag og talaði þar um feril sinn. Hann sagði við fréttamenn: „Eina félagið á mínum ferli sem ég ber ekki enn djúpar tilfinningar til er Tottenham."

„Það er örugglega vegna þess að völlurinn var tómur á meðan ég var þar, út af Covid. Það er örugglega líka út af því að herra Levy (stjórnarformaður Tottenham) leyfði mér ekki að vinna úrslitaleik, vinna bikar."

„Ég finn fyrir tengingu við öll hin félögin."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.