Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
   mán 25. maí 2026 20:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Alisson fer ekki til Juventus
Mynd: EPA
Alisson Becker, markvörður Liverpool, verður líklega áfram hjá félaginu á næstu leiktíð. Sky Sports greinir frá þessu.

Alisson hefur verið orðaður við Juventus en talið er að brasilíski markvörðurinn sé efstur á óskalista félagsins.

Framtíð Ibrahima Konate er hins vegar enn í óvissu. Hann hefur ekki skrifað undir nýjan samning. Enskir fjölmiðlar greindu frá því fyrir nokkrum vikum að hann væri nálægt því að skrifa undir nýjan samning en það hefur lítið gerst síðan þá.

Liverpool hefur tryggt sér þjónustu Jeremy Jacquet sem kemur í sumar frá Rennes rétt fyrir 21 árs afmælið sitt. Hann missti af síðustu leikjum tímabilsins vegna meiðsla á öxl. Þá snýr Geovanni Leoni aftur á næsta tímabili eftir krossbandaslit.

Slapp
banner
banner