Sjöttu umferð Bestu deildar kvenna lauk í kvöld með þremur leikjum. Breiðablik fékk FH í heimsókn í toppslag. Þetta var Styrktarleikur fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru og Blikar spiluðu í sérstökum bleikum búningum.
Heimakonur byrjuðu betur og Agla Maria Albertsdóttir kom Blikum yfir þegar hún skoraði með skalla eftir góða fyrirgjöf frá Elísu Viðarsdóttur á fjærstöngina.
FH-ingar sóttu í sig veðrið í kjölfarið og Ingibjörg Magnúsdóttir jafnaði metin. Hún virtist vera reyna koma boltanum fyrir en hann rataði alla leið í fjærhornið.
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir endurheimti forystuna fyrir Blika eftir klukkutíma leik. FH jafnaði metin aftur stuttu síðar þegar Deja Sandoval skallaði boltann í netið.
FH fékk síðan vítaspyrnu þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma og Ída Marín Hermannsdóttir skoraði úr vítinu og tryggði liðinu sigurinn.
Víkingur fékk Val í heimsókn. Nadía Atladóttir fékk færi til að koma Val yfir undir lok fyrri hálfleiks gegn sínum gömlu félögum en skotið beint á Elizabeth Grace McClellan í marki Víkings.
Nadía náði hins vegar að koma Víkingum yfir strax í upphafi seinni hálfleiks eftir sendingu frá Ísabellu Söra Tryggvadóttir.
Jasmín Erla Ingadóttir var nálægt því að jafna metin gegn sínum gömlu félögum en skallaði framhjá. Nær komust þær ekki og kærkominn sigur Vals staðreynd. Valur var án sigurs í fimm leikjum í röð.
Þróttur fékk Stjörnuna í heimsókn. Staðan var markalaus í hálfleik en Stjarnan komst yfir eftir klukkutíma leik eftir hornspyrnu. Unnur Dóra Bergsdóttir komst ein í gegn stuttu síðar og hefði getað jafnað metin en skotið slakt.
Nær komust Þróttarar ekki og sigur Stjörnunnar staðreynd. FH er í 2. sæti með 13 stig, tveimur stigum á eftir Blikum. Stjarnan er í 5. sæti með átta stig, stigi á eftir Þrótti sem er í 4. sæti. Þá fer Valur upp í 7. sæti með sjö stig, stigi á undan Víkingi sem er í 8. sæti.
Víkingur R. 0 - 1 Valur
0-1 Nadía Atladóttir ('47 )
Lestu um leikinn
Breiðablik 2 - 3 FH
1-0 Agla María Albertsdóttir ('16 )
1-1 Ingibjörg Magnúsdóttir ('39 )
2-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('58 )
2-2 Deja Jaylyn Sandoval ('65 )
2-3 Ída Marín Hermannsdóttir ('75 )
Lestu um leikinn
Þróttur R. 0 - 1 Stjarnan
0-1 Eva Marie Wirtz ('61 )
Lestu um leikinn


