Tveimur leikjum er lokið í 6. umferð Bestu deildar kvenna. Fram fékk Þór/KA í heimsókn í botnslag.
Margrét Árnadóttir kom Þór/KA yfir snemma leiks með góðu skoti. Fram brást vel við markinu og Alda Ólafsdóttir jafnaði metin stuttu síðar. Taylor Marie Hamlett kom síðan Fram yfir strax í kjölfarið með góðu skoti úr teignum í fjærhornið.
Margrét Árnadóttir kom Þór/KA yfir snemma leiks með góðu skoti. Fram brást vel við markinu og Alda Ólafsdóttir jafnaði metin stuttu síðar. Taylor Marie Hamlett kom síðan Fram yfir strax í kjölfarið með góðu skoti úr teignum í fjærhornið.
Forysta Fram stóð hins vegar ekki lengi yfir þar sem Margrét skoraði sitt annað mark á 18. mínútu. Arna Sif Ásgrímsdóttir átti skalla að marki og Margrét náði snertingu á boltann og boltinn hafnaði í netinu.
Fram endurheimti forystuna strax í upphafi leiks þegar Alda skoraði sitt annað mark og þriðja mark Fram.
Gestunum tókst ekki að jafna metin og sigur Fram staðreynd. Þetta var fyrsti sigur liðsins og Fram fer upp fyrir Þór/KA í 9. sæti með 4 stig en Þór/KA er á botninum með tvö stig.
ÍBV fékk Grindavík/Njarðvík í heimsókn í nýliðaslag. Bæði lið hafa farið frábærlega af stað og eru í toppbaráttunni.
Bæði lið fengu góð færi í upphafi leiks en það var Grindavík/Njarðvík sem komst yfir þegar Natasha Anasi skoraði eftir mikinn darraðadans inn á teignum.
Þóra Björg Stefánsdóttir var nálægt því að jafna metin fyrir ÍBV þegar hún setti boltann í samskeytin beint úr hornspyrnu. Það stefndi í sigur gestanna en Allison Clark fékk fyrirgjöf og skoraði með skoti í hornið og bjargaði stigi fyrir Eyjakonur.
ÍBV er í 2. sæti með 13 stig, tveimur stigum á eftir Breiðabliki sem mætir FH í kvöld. Grindavík/Njarðvík er í 5. sæti með átta.
Fram 3 - 2 Þór/KA
0-1 Margrét Árnadóttir ('7 )
1-1 Alda Ólafsdóttir ('11 )
2-1 Taylor Marie Hamlett ('12 )
2-2 Margrét Árnadóttir ('18 )
3-2 Alda Ólafsdóttir ('48 )
Lestu um leikinn
ÍBV 1 - 1 Grindavík/Njarðvík
0-1 Natasha Moraa Anasi ('36 )
1-1 Allison Patricia Clark ('92 )
Lestu um leikinn
Besta kvenna
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Breiðablik | 5 | 5 | 0 | 0 | 14 - 5 | +9 | 15 |
| 2. ÍBV | 6 | 4 | 1 | 1 | 13 - 11 | +2 | 13 |
| 3. FH | 5 | 3 | 1 | 1 | 9 - 5 | +4 | 10 |
| 4. Þróttur R. | 5 | 3 | 0 | 2 | 10 - 6 | +4 | 9 |
| 5. Grindavík/Njarðvík | 6 | 2 | 2 | 2 | 8 - 8 | 0 | 8 |
| 6. Víkingur R. | 5 | 2 | 0 | 3 | 8 - 12 | -4 | 6 |
| 7. Stjarnan | 5 | 1 | 2 | 2 | 7 - 7 | 0 | 5 |
| 8. Valur | 5 | 1 | 1 | 3 | 6 - 9 | -3 | 4 |
| 9. Þór/KA | 5 | 0 | 2 | 3 | 5 - 10 | -5 | 2 |
| 10. Fram | 5 | 0 | 1 | 4 | 3 - 10 | -7 | 1 |

