Bruno Fernandes, fyrirliði Man Utd, sakar Roy Keane, fyrrum fyrrum fyrirliða liðsins, um lygar. Keane gagnrýndi meint ummæli Fernandes eftir leik liðsins gegn Nottingham Forest þar sem Fernandes jafnaði stoðsendingametið.
Fernandes lagði upp 20 markið á tímabilinu gegn Forest en bætti stoðsendingametið á einu tímabili í lokaumferðinni gegn Brighton.
Fernandes lagði upp 20 markið á tímabilinu gegn Forest en bætti stoðsendingametið á einu tímabili í lokaumferðinni gegn Brighton.
„Hann fór í viðtal eftir Forest leikinn og fyrirliðinn sagði: 'Ég hefði sennilega átt að skjóta nokkrum sinnum en ákvað að senda'. Vá, hvenrig getur hugsunarháttur fótboltamanns verið um einstaklingsmet fyrir leik? Hann mun ekki vinna titla, ekki með þessu hugarfari til liðsins," sagði Keane í hlaðvarpinu The Overlap.
Fernandes sagði hins vegar: „Það voru líklega augnablik þar sem ég hefði átt að senda frekar en að skjóta. Ég er ánægður með stoðsendinguna en aðallega er ég ánægður með sigurinn og enda tímabilið vel."
Fernandes var í viðtali í hlaðvarpinu The Diary of a CEO þar sem hann tjáði sig um ummæli Keane. Hann segist hafa fengið símanúmerið hans hjá Ole Gunnar Solskjær til að þeir gætu rætt málin.
„Mér er sama um gagnrýni. Ég hef alltaf tekið gagnrýni frá öllum og svara engu. Fólk er með sínar skoðanir. Það sem ég fíla ekki er þegar fólk lýgur um hluti og í þetta sinn þá var það sem Roy Keane sagði lygi. Annað hvort sá hann annað viðtal eða hann getur ekki sagt rétt frá en sem betur fer fyrir mig er þetta á upptöku," sagði Fernandes.
„Ég sætti mig við gagnrýni, tek því hvort sem hann líkar við mig eða ekki sem leikmaður eða manneskja. Það sem ég kann ekki að meta er að hann leggi mér orð í munn sem ég sagði ekki."

