Grindavík/Njarðvík gerði jafntefli gegn ÍBV í Eyjum í nýliðaslagnum í Bestu deild kvenna í dag. Gestirnir fengu á sig jöfnunarmark í uppbótatíma. Fótbolti.net ræddi við Gylfa Tryggvason, þjálfara Grindavíkur/Njarðvíkur eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 1 Grindavík/Njarðvík
„Annar leikurinn í röð sem það gerist. Við þurfum að fara skoða af hverju það er að gerast. Mér finnst að við hefðum átt að vera löngu búnar að gera út um þennan leik. Þetta var léleg frammistaða í seinni eins og fyrri var góð," sagði Gylfi.
Árangur liðsins hefur ekki komið Gylfa á óvart en Grindavík/Njarðvík er í 5. sæti með 8 stig eftir sex umferðir.
„Þegar ég vinn með þessum leikmönnum á hverjum degi kemur mér ekki á óvart að þær séu að standa sig vel í Bestu deildinni. Mér finnst þetta gott lið og erum að spila vel heilt yfir, seinni hálfleikurinn var með því daprara sem ég hef séð frá mínu liði. Heilt yfir erum við sátt með byrjunina. Við erum búin að vera samkeppnishæf í þeim leikjum sem við höfum spilað. Heilt yfir sáttur þó að þessi ógeðistilfinning er efst í kollinum núna þegar maður fær svona í smettið í uppbótatíma."
Gylfi hrósaði Jóni Ólafi Daníelssyni, þjálfara ÍBV, í hástert.
„Það þarf að taka til greina að ég er að keppa við mann sem er með svartabeltið í leikfræðauppsetningu á þessum vindi. Jón Óli, þessi mannandskoti, veit nákvæmlega hvað hann er að gera. Er með svartabeltið í þessum vindaleikjum. Held að þeirra leikplan hafi gengið upp."






















