Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
   mán 25. maí 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Hefur enga ástæðu til að halda að Bruno fari
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Michael Carrick þjálfari Manchester United var kátur eftir frábæran sigur á útivelli gegn Evrópubaráttuliði Brighton í lokaumferð úrvalsdeildartímabilsins í gær.

Hann svaraði spurningum að leikslokum og var meðal annars spurður út í Bruno Fernandes sem bætti stoðsendingamet ensku úrvalsdeildarinnar með 21. stoðsendingunni sinni í fyrsta marki leiksins gegn Brighton.

   24.05.2026 15:41
Bruno sló stoðsendingametið


Bruno er fyrirliði Manchester United hefur hafnað félagaskiptum til Sádi-Arabíu til þess að hjálpa liðinu á erfiðum tímum, þrátt fyrir talsvert hærri tekjumöguleika fyrir austan.

Bruno er 31 árs gamall og á eitt ár eftir af samningi, með möguleika á eins árs framlengingu. Gæti hann verið á förum í sumar?

„Hann er rosalega mikilvægur fyrir þetta lið. Hann er alvöru leiðtogi sem leggur alltaf allt í sölurnar. Ég hef enga ástæðu til að halda að hann sé á förum í sumar," sagði Carrick.

„Ég elska hvað hann hefur gert fyrir félagið og ég get séð að hann elskar að vera hérna. Hann elskar að spila fyrir Manchester United og það er stórkostlegt að sjá."

   23.05.2026 10:43
Bruno Fernandes leikmaður ársins í úrvalsdeildinni

Slapp
banner
banner
banner