Breiðablik tók á móti FH í stórskemmtilegum leik á Kópavogsvelli í dag þar sem FH-ingar fóru með öll stigin þrjú heim í Hafnarfjörð. Þetta voru fyrstu stigin sem Breiðablik tapar það sem af er tímabili.
Ian Jeffs þjálfari Breiðabliks hafði þetta um leikinn að segja:
"Við vorum að tapa fótboltaleik í dag og það er alltaf svekkjandi. Mér fannst heilt yfir 90 mínúturnar þetta ekki vera alveg sanngjarnt miðað við færin sem við fáum í leiknum. Jafntefli eða sigur fyrir okkur hefði verið sanngjarnt. Þetta er mjög gott FH lið og þetta datt þeirra megin í dag"

Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 3 FH
Aðspurður að hvað klikkaði hafði Ian Jeffs þetta að segja:
"Þessi þrju augnablik fannst mér. Lélegur varnarleikur í fyrsta markinu, við vorum ekki nógu grimm í hornspyrnunni sem þær skora úr og vítið. Ég man ekki eftir mörgum færum fyrir utan það en leikurinn opnast smávegis síðusta korterið þegar við köstum fleiri leikmönnum í sóknarstöður og þá opnast aðeins. Við skorum tvö mörk og áttum að skora fleiri. Þessi augnablik sem FH skora úr er eitthvað sem við þurfum að skoða"
Viðtalið í heild má finna í spilaranum hér að ofan