ÍBV gerði jafntefli gegn Grindavík/Njarðvík í nýliðaslag í Bestu deild kvenna í Eyjum í dag. ÍBV jafnaði metin í uppbótatíma. Fótbolti.net ræddi við Jón Ólaf Daníelsson, þjálfara ÍBV, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 1 Grindavík/Njarðvík
„Maður lítur eiginlega á þetta sem sigur þegar maður jafnar í uppbótatíma. Ég held að jafntefli sé sanngjarnt, ég er mjög ánægður með þetta stig," sagði Jón Óli.
Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, talaði um að Jón Óli væri með svartabeltið í að setja upp leiki í miklum vindi.
„Nú kemur mannandskotinn labbandi úr miðbæ Reykjavíkur úr logninu. Við erum svo sem sjóaðir í rokinu hérna," sagði Jón Óli léttur.
Það eru gríðarlega mikil meiðslavandræði hjá Eyjakonum. Það er komið í ljós að Embla Harðardóttir hafi slitið krossband gegn FH.
„Ég er búinn að byðja um leyfi til að bæta við í það minnsta einum leikmanni. Ég myndi helst vilja fá tvo leikmenn, í það minnsta einn með aldur og reynslu," sagði Jón Óli.
„Á endanum brotna ungir leikmenn, við erum að keyra á ungum leikmönnum leik eftir leik og við vitum allir hvernig það endar. Ég kalla eftir því við mína stjórn að menn gefi heimild til að við fáum leikmann með aldur og reynslu til að hjálpa ungu leikmönnunum."























