„Kampakátur að vinna leikinn, mjög ánægður með, varnarleikur liðsins náttúrulega bara frábær, hefur verið í allt sumar. Við sýndum það hérna að við erum eitt besta varnarlið deildarinnar að mínu mati“, sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 0-1 sigur gegn Þrótti í Laugardalnum í dag.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 - 1 Stjarnan
„Við gerðum það vel, okkar varnarfærslur vel og undirbúningurinn var góður fyrir leikinn. Þetta var djöfulsins barningur, barátta út um allan völl og kannski ekkert alltaf skemmtilegasti fótbolti sem var spilaður inn á milli en svona heilt yfir þá fannst mér við alveg eiga skilið (að vinna) á miðað við hvernig leikurinn spilaðist“, hélt hann áfram.
Aðspurður hvernig hann metur byrjun síns liðs á mótinu og hvort átta stig eftir sex leiki séu minna en vonast var eftir í Garðabænum segir hann:
„Já það er minna en við vonuðumst eftir en við erum bara að horfa á frammistöðurnar okkar og frammistöðurnar hafa verið góðar. Mér finnst við hafa, við erum að vaxa, það er stígandi í því sem við erum að gera og á meðan að það er staðan þá get ég verið ánægður. Stigasöfnunin, hún er ekki nægilega góð, ég er sammála því en samt ekki, við missum ekki svefn yfir því að við séum ekki búnar að ná í fleiri stig. Það er nóg eftir af mótinu og við reynum bara að fara í hvern einasta leik til að vinna hann, rétt eins og við gerðum í dag og við munum gera aftur á laugardaginn og svo bara verður það að koma í ljós.“
Óskar var spurður út í stöðuna á hópnum sínum og færði þar slæmar fréttir af Murielle Tiernan:
„Jana er frá hún fékk högg á móti Þór/KA ef ég man rétt á Akureyri. Hún er búin að fá smá tíma núna, það er vont, góður sóknarmaður. Murr verður eitthvað meira frá, eitthvað lengur og mikið frá þannig að hún er ekkert á næstunni að koma inn. Vonandi fáum við Jönu inn sem fyrst, við værum til í að endurheimta hana.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.























