Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
   mán 25. maí 2026 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Robertson: Meiri kjarakaup en ég var
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Í kveðjuviðtali sínu við SkySports heiðraði Andy Robertson, vinstri bakvörður Liverpool, tvo aðila sem greinilega voru honum ofarlega í huga í gær. Robertson og Mo Salah voru að kveðja Liverpool í gær.

Annar þeirra er Pep Guardiola sem var að hætta hjá Manchester City eftir tíu ár við stjórnvölinn.

„Frá mér séð eru tveir aðrir mikilvægir menn að yfirgefa önnur félög í dag. Pep Guardiola ýtti okkur að alveg nýjum mörkum, við hefðum örugglega unnið fleiri úrvalsdeildartitla ef það væri ekki fyrir þann mann. Þvílíkur þjónn fyrir Manchester City og ég óska honum alls hins besta."

Svo heiðraði Robertson Seamus Coleman sem er að yfirgefa Everton eftir mjög langa veru hjá grönnum Liverpool.

„Þegar ég var að alast upp var hann einn af úrvalsdeildarbakvörðunum sem spilaði á mjög háu getustigi. Kaupin á honum voru klárlega meiri kjarakaup en á mér, kostaði 60 þúsund pund. Hann er að yfirgefa Everton, hefur verið frábær þjónn fyrir Everton og ég óska honum alls hins besta," sagði Robertson.

Robertson var keyptur á 2,85 milljónir punda af Hull frá Dundee árið 2014. Liverpool keypti hann svo á 10 milljónir punda 2017 og spilaði skoski bakvörðurinn frábærlega fyrir félagið. Hann spilaði 378 leiki fyrri félagið og skoraði 14 mör. Robertson er sterklega orðaður við Tottenham.

Coleman var keyptur árið 2009 til Everton frá Sligo Rovers í Írlandi fyrir 60 þúsund pund árið 2009. Hann spilaði alls 435 leiki fyrir Everton og skoraði 28 mörk.


Slapp
banner