Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Telma Steindórs: Við höfum getað gert miklu betur
Ian Jeffs: Þetta var ekki alveg sanngjarnt
Óskar Smári: Við missum ekki svefn yfir því
Guðni: Það væri frábært ef þetta væri svona í öllum leikjum
Jóhann Kristinn: Eina sem við getum gert er að skammast okkar í kvöld
Matti er stoltur að hafa haldið hreinu tvo leiki í röð
Einar hefur áhyggjur af stöðunni: Stelpurnar hafa lent í þessu áður
Jón Óli léttur: Mannandskotinn kemur úr logninu úr miðbæ Reykjavíkur
Gylfi Tryggva: Ógeðistilfinning efst í kollinum
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
   mán 25. maí 2026 23:39
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Telma Steindórs: Við höfum getað gert miklu betur
Kvenaboltinn
Telma Steindórsdóttir, leikmaður Stjörnunnar
Telma Steindórsdóttir, leikmaður Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mjög glöð með þrjú stig og að halda hreinu líka, bara mjög gott“ sagði Telma Steindórsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, eftir 0-1 sigur á Þrótti í Laugardalnum í dag. 


Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 -  1 Stjarnan

Leikurinn var nokkuð gæðalítill fram á við og aðspurð hvernig henni hefði liðið með leikinn sagði hún:

„Mér fannst fyrri hálfleikurinn fínn hjá okkur. Mér fannst við halda vel í boltann of pressa þær hátt uppi. Við droppuðum smá eftir markið okkar en gott að ná þremur stigum og halda hreinu.“

Stjörnukonur eru komnar með átta stig eftir sex umferðir sem er líklega minna en þær stefndu á Telma metur stöðuna nokkuð góða:

„Bara allt í lagi sko, við höfum átt fínar frammistöður en við höfum líka getað gert miklu betur og bara gott að fá þennan leik í dag og byrrja ofan á það, klárlega.“

Þetta er fyrsta tímabil Telmu í Garðabænum en hún fylgdi Óskari Smára frá Fram þegar hann tók við Stjörnukonum í vetur

„Stelpurnar tóku ótrúlega vel á móti mér og hópurinn er æði. Ég þekki Óskar náttúrulega vel og mér líður mjög vel.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. 


Slapp
banner
banner