25.06.21 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Höttur/Huginn tileinkaði Ion sigur - Fá annan Spánverja (Staðfest)

Úr leik hjá Hetti/Hugin á síðustu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Höttur/Huginn hefur átt mjög gott tímabil til þessa í 3. deildinni og er sem stendur á toppi deildarinnar.
<b>Sjá einnig:</b>
<a href="https://www.fotbolti.net/news/25-06-2021/mognud-baeting-hja-hetti-hugin-rett-samsetning-og-god-stemning" target="_blank">Mögnuð bæting hjá Hetti/Hugin: Rétt samsetning og góð stemning</a>

Hinn spænski Ion Perelló Machi kom til Hattar/Hugins og hann var öflugur í upphafi tímabilsins. Hann meiddist hins vegar KFG og verður ekki meira með á tímabilinu - að öllum líkindum.
„Hann meiddist illa í leik gegn KFG þar sem hann lenti í samstuði og skaddaði liðbönd í ökkla. Hann fór því heim til Spánar í endurhæfingu og verður líklega ekki meira með. Það var vont að missa hann enda verið frábær í fyrstu leikjunum," segir Brynjar Árnason, þjálfari liðsins.
Félagið er nú þegar búið að tryggja sér þjónustu annars Spánverja, en það er sóknarmaður sem heitir Manu Torres.
„Við fáum Manu inn þegar glugginn opnar en það er öflugur framherji frá Spáni sem við berum miklar væntingar til. Hann hefur verið að spila í neðri deildunum á Spáni og var markakóngur á síðasta tímabili í sinni deild," segir Brynjar um nýja leikmanninn sem á að koma inn með mörk.

For you @IonMachi ⚽️ https://t.co/u7vJUwkuuH
— Höttur (@HotturOfficial) June 19, 2021