Fotbolti.net
25.06.26 - 10:54
Elvar Geir Magnússon

Franskur fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni

Kenzo Kies.

Kenzo Kies.

Canon

Mynd: Saint-Etienne

Franski fótboltamaðurinn Kenzo Kies lést eftir að hafa drukknað í ánni Rón í Frakklandi.

Kies var 21 árs og lék fyrir franska B-deildarfélagið Guingamp. Hann var í alvarlegu ástandi þegar hann var dreginn upp af slökkviliðsmönnum á mánudag og lést svo á sjúkrahúsi.

Hann hafði ásamt þremur vinum sínum farið í ánna nálægt Lyon til að kæla sig frá hitabylgjunni í Frakklandi en hitastigið hefur farið yfir 40 gráðurnar á vissum stöðum í landinu,

Alls hafa fjörtíu einstaklingar drukknað á einni viku í Frakklandi í tengslum við hitabylgjuna.

Kies var í yngri liðum Lyon og Saint-Etienne áður en hann gekk í raðir Guingamp á síðasta ári en hann spilaði fyrir varalið félagsins. Gunigamp og Saint-Etienne hafa gefið frá sér yfirlýsingar og fjallað er um málið á vefsíðu BBC. Þar segir að Saint-Etienne muni verða með minningarathöfn um Kies á heimavelli sínum í upphafi næsta tímabils.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.