Fotbolti.net
24.06.26 - 16:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kalamata ætlar sér að fá Arnór Sig

Kalamata ætlar sér að fá Arnór Sig
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson gæti verið á leið til gríska félagsins Kalamata sem vill kaupa hann frá sænska félaginu Malmö.

Arnór, sem er 27 ára sóknarmaður, hefur verið í rúmt ár hjá Malmö eftir að hafa verið hjá Blackburn á Englandi.

Arnór náði ekki að sýna oft hvað í honum býr á síðasta tímabili vegna meiðsla.

Á þessu tímabili spilaði hann í sænska bikarnum, byrjaði hann svo fyrsta bikaleikinn og kom við sögu sem varamaður í næstu þremur.
Arnór tjáði sig um gagnrýnina - „Alveg sama hvað er sagt um mig"
TENGT EFNI

Arnór tjáði sig um gagnrýnina - „Alveg sama hvað er sagt um mig"

Arnór kom inn á í vináttulandsleiknum gegn Argentínu sem var hans 36. landsleikur. Í aðdraganda leiksins hafði hann ekki spilað í rúman mánuð með Malmö.

Gríska Gazzettan segir að Arnór gæti verið að yfirgefa Malmö því Kalamata FC vill fá hann og hafa viðræður verið í gangi í smá tíma.

Kalamata vann grísku B-deildina á liðnu tímabili og spilar í efstu deild á komandi tímabili. Samningur Arnórs við Malmö rennur út eftir næsta tímabil.
Kalamata ætlar sér að fá Arnór Sig
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.