Fotbolti.net
25.06.26 - 14:25
Elvar Geir Magnússon

Tómas Bent fær nýjan stjóra eftir að McInnes tók við Rangers

Wouter Vrancken.

Wouter Vrancken.

Canon

Mynd: EPA

Skoska félagið Hearts hefur ráðið Wouter Vrancken sem nýjan stjóra eftir að Derek McInnes lét af störfum til að taka við Rangers.

Miðjumaðurinn Tómas Bent Magnússon, fyrrum leikmaður ÍBV og Vals, spilar fyrir Hearts en liðið var í harðri titilbaráttu í skosku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili. Liðið tapaði fyrir Celtic á lokadegi og missti af titlinum.
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
TENGT EFNI

Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“

Hinn 47 ára gamli Vrancken er fyrrum stjóri Genk en hann var valinn þjálfari ársins í Belgíu eftir að hann stýrði Sint-Truiden í þriðja sætið í belgísku úrvalsdeildinni.

McInnes var formlega kynntur í vikunni sem nýr stjóri Rangers.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.