Sterkust í 9. umferð - Kominn tími á að stela fyrirsögnum

Birna Jóhannsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birna í leik með Stjörnunni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kominn tími á að stela fyrirsögnunum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birna Jóhannsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er engin spurning að Birna Jóhannsdóttir er sterkasti leikmaður 9. umferðar Bestu deildar kvenna í boði Steypustöðvarinnar.
Hún skoraði þrennu þegar Stjarnan vann þægilegan 3-0 sigur gegn Fram á dögunum.

TENGT EFNI
Sterkasta lið 9. umferðar - Skákaði læriföðurnum
„Með þrennu í dag! Ekki hægt að velja neinn annan leikmann, var alltaf hárrétt kona á hárréttum stað og vissi nákvæmlega hvert boltinn var að fara. Dugleg inn á miðsvæðinu og eðalslútt hjá henni í kvöld," skrifaði Snæbjört Pálsdóttir í skýrslu sinni frá leiknum.
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, hrósaði Birnu í hástert eftir leikinn.
„Birna vel að þessum verðlaunum komin. Hún sjálf var fljót að þakka liðsfélögunum undirbúninginn og það segir margt um hana og stemninguna innan liðsins. Birna er klók og öflug inn í teignum og rak endahnútinn á þremur góðum sóknum okkar," segir Óskar við Fótbolta.net.
Hann ræddi einnig við Vísi eftir leik. „Ég held að það séu engar tilviljanir í fótbolta og Birna eiginlega trekkti okkur í gang í dag. Hún setti svolítið tóninn eftir 10–15 mínútur, fór að pressa fastar og var mjög, mjög vel að þessum þremur mörkum komin."
„Birna er bara ofboðslega klókur leikmaður. Það fer ekki alltaf mest fyrir henni, hún er ekki að taka tvöföld skæri og fara fram hjá tveimur leikmönnum. En vá hvað hún er mikilvæg í okkar leik."
„Hún er ofboðslega klók, hún er ósérhlífin. Hún er ekki fljótust í löppunum en hún er einn hraðasti leikmaðurinn í hausnum. Birna lætur lítið fyrir sér fara og kannski er kominn tími á að stela svona fyrirsögnum, því hún á það skilið," sagði Óskar Smári en Birna fær svo sannarlega fyrirsagnirnar að þessu sinni.

Sterkust í 8. umferð - Fór fyrir ótrúlegum sigri

TENGT EFNI
Sterkust í 7. umferð - Var langbest

TENGT EFNI
Sterkust í 6. umferð - Verður hún í deildinni á næsta ári?

TENGT EFNI
Sterkust í 5. umferð - Ekkert eðlilega skemmtilegur karakter

TENGT EFNI
Sterkust í 4. umferð - Kom á láni rétt fyrir fyrsta leik

TENGT EFNI
Sterkust í 3. umferð - Bara eins og uppalin Eyjakona

TENGT EFNI
Sterkust í 2. umferð - Varnarmaður sem átti þátt í báðum mörkunum

TENGT EFNI