Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 25. júlí 2021 16:08
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið ÍA og FH: Tvær breytingar hjá hvoru liði
Ólafur Guðmundsson byrjar hjá FH.
Ólafur Guðmundsson byrjar hjá FH.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
ÍA tekur á móti FH í Pepsi Max-deild karla klukkan 17:00 á Akranesvelli en leikurinn er liður í 14. umferð Pepsi Max-deildar karla. Byrjunarliðin eru klár og þau má sjá hér að neðan.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu

Jóhannes Karl Guðjónsson gerir tvær breytingar á liði ÍA frá síðasta leik sem var óvæntur 2 - 1 sigur liðsins á Val á Akranesi. Hlynur Sævar Jónsson og Guðmundur Tyrfingsson koma inn fyrir þá Jón Gísla Eyland Gíslason sem er í leikbanni og Hall Flosason sem meiddist illa gegn Val.

Síðasti leikur FH var gegn Rosenborg frá Noregi í Sambandsdeild Evrópu á fimmtudaginn. Ólafur Jóhannesson þjálfari FH gerir líka tvær breytingar á sínu liði. Pétur Viðarsson tekur út leikbann og auk hans er Vuk Óskar Dimitrevic ekki í leikmannahópi FH í dag. Í þeirra stað koma þeir Baldur Logi Guðlaugsson og Ólafur Guðmundsson í byrjunarliðið.

Byrjunarlið ÍA:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Óttar Bjarni Guðmundsson (f)
7. Sindri Snær Magnússon
9. Viktor Jónsson
10. Steinar Þorsteinsson
17. Gísli Laxdal Unnarsson
18. Elias Tamburini
19. Ísak Snær Þorvaldsson
20. Guðmundur Tyrfingsson
24. Hlynur Sævar Jónsson
44. Alex Davey

Byrjunarlið FH:
1. Gunnar Nielsen (m)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
6. Eggert Gunnþór Jónsson
7. Steven Lennon
9. Matthías Vilhjálmsson (f)
10. Björn Daníel Sverrisson
11. Jónatan Ingi Jónsson
16. Guðmundur Kristjánsson
17. Baldur Logi Guðlaugsson
18. Ólafur Guðmundsson
21. Guðmann Þórisson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner