banner
   sun 25. júlí 2021 21:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mögnuð markatölfræði Nikolaj Hansen
Nikolaj Hansen.
Nikolaj Hansen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nikolaj Hansen heldur áfram að eiga sumar lífs síns. Hann er óstöðvandi á fótboltavellinum.

Danski sóknarmaðurinn hefur heldur betur reimað á sig markaskóna í leikjum Víkings í sumar. Hann skoraði tvö mörk í kvöld þegar Víkingur lagði Stjörnuna að velli, 3-2.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  2 Stjarnan

Nikolaj er núna búinn að skora 13 mörk í 14 leikjum í Pepsi Max-deildinni.

Hann er búinn að skora tæplega 64 prósent af mörkum Víkings í deildinni í sumar en það er stórkostlegur árangur hjá honum.

Hann gæti í raun verið búinn að skora nokkur mörk til viðbótar en það er ekki hægt að skamma hann mikið. Hann er stærsta ástæða þess að Víkingur er einu stigi frá toppsæti deildarinnar þegar átta leikir eru eftir.
Athugasemdir
banner
banner