Fotbolti.net
25.08.15 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Cuadrado kominn til Juventus (Staðfest)

Cuadrado gerði 20 mörk í 85 leikjum hjá Fiorentina.

Cuadrado gerði 20 mörk í 85 leikjum hjá Fiorentina.

Canon

Mynd: Getty Images

Juan Cuadrado verður hjá Juventus út tímabilið en hann er lentur á Ítalíu og búinn að gefa sitt fyrsta viðtal.

Cuadrado komst í sviðsljósið sem leikmaður Fiorentina og var keyptur til Chelsea í febrúar en fékk lítinn spilatíma hjá Englandsmeisturunum í vor.
Fiorentina reyndi að fá hann aftur frá Chelsea í sumar en að lokum var það Juventus sem vann kapphlaupið og krækir í þennan 27 ára kantmann á lánssamning sem kostar félagið rétt rúmlega eina milljón punda.

„Ég bjóst ekki við þessum móttökum, að finna hitann frá fólkinu er mjög gott,\" sagði Cuadrado við komu sína til Ítalíu.

„Það er mikilvægt að hafa stuðningsmenn bakvið sig. Við vitum að Juventus er stórlið, eitt af þeim bestu í Evrópu, sem hefur alla burði til þess að verja titlana sína.

„Ég ætla að gefa mig allan í verkefnið, ég mun alltaf leggja mig 100% fram.

„Ég vil skila kveðju og faðmlagi til allra stuðningsmanna Juventus.\"

Heimild: gianluca di marzio

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.